|
11.10.2007 10:23:19 / heidurlo
ER EINHVER SEM SKOÐAR ÞETTA ENNÞÁ? HVER ER ALLTAF AÐ KOMA Á ÞESSA SÍÐU?!
»
14.07.2006 09:10:27 / heidurlo
ég er að fara að þjálfa úti alllllla helgina.
ást mín á þessu blessaða landa er dvínandi
»
11.07.2006 15:32:23 / heidurlo
mikið er ég slappur bloggari, eða slöpp bloggkona...
ömm frá því síðast hefur margt gerst en fátt merkilegt.
ég fór auðvitað til Ítalíu til smábæjarins Mozzecane! Þar var lífið
sko ljúft, sól, sólbað, fótbolti, pasta, gúrka, hægosi, sól,
bikiní, Mílanó, Verona, ís og ávextir....og sól.
ahh ég sakna ítalíu og allra krúttanna þar (bendi á myndir á
dotphoto.com,us:heidurlo, pass:vala)
Eftir að ég kom heim hefur lífið gengið sinn vanagang, vinna til
hádegis, þjálfa til 3, gera ekki neitt til 6 en þá er
æfing....ruslfæði á kvöldin vegna þess að foreldrar mínir eru
aldrei heima...og tjill um helgar. ég er einhvern veginn
ennþá að bíða eftir því að sumarið byrji...ég vil sól!!!
en jæja, afsakið(þið 2 sem lesið) þessa færslu...ég er aðeins að
koma mér í gang aftur...
»
06.06.2006 09:14:59 / heidurlo
italia, here I come...
»
11.05.2006 18:06:29 / heidurlo
ég er svo mikil
skræfa að það liggur við að vera grátlegt.
ég þori
eiginlega ekki að hoppa á trampólíni.

ég vildi að ég væri jafn huguð og this guy
»
01.05.2006 17:55:52 / heidurlo
apríl (einn besti mánuður ársins) er liðinn og maí tekinn
við. Til hamingju með það!
maí er næstum því alveg jafn frábær og apríl.
1.apríl vs. 1.maí > Grín og gaman vs. alvarleiki og
frídagur!
páskar vs. próf > Frí,læra smá og súkkulaðiát vs. Frí,læra
og nammiát (hmm...)
afmæli mitt vs. afmæli margra annarra > skemmtilegasti
dagur ársins vs. útgjöld !
síðasti kennsludagur vs. síðasti prófdagur > ok maí vinnur
þarna
....svo er sumarfrí með tilheyrandi vinnu í maí þannig að já.
maí er ágætur. en apríl er samt betri.
»
22.04.2006 17:35:00 / heidurlo
Hæ ég er 19 ára og ég segi allt gott. Ég var reyndar pínu
rugluð í gær, gleymdi ýmsu mikilvægu, en það er nú bara eðlilegt á
svona afmælisdögum... : )
Ég vil þakka vinum og vandamönnum hin fjölmörgu skeyti,
útvarpskveðjur,blómasendingar og gjafir sem ég fékk
Ég elska ykkur öll!
»
10.04.2006 18:07:39 / heidurlo
einu sinni var maður, fatahönnuður reyndar, sem átti hund sem hét
Nýjasta Tíska. Dag einn þegar maðurinn var í sturtu sá hann
útundan sér að hundurinn slapp út. Hann hljóp þá út á eftir
hundinum og öskraði "nýjasta tíska, nýjasta tíska!!!" um allan
bæ.
Daginn eftir voru allir allsberir
»
04.04.2006 15:45:58 / heidurlo
..ég ætla ekki að segja nýjustu tísku brandarann þó að hann
sé góður, heldur ætla ég bara aðeins að fræða ykkur hin um nýjustu
tísku af því að ég er svo hip
- í dag er enginn maður með mönnum nema hann hafi rænt annarri
manneskju
- tilraunir til nauðgunar eru greinilega að koma sterkar inn
- berja einhvern með einhverju af eftirfarandi: golfkylfu,
hafnarboltakylfu byssuskafti
- stinga einhvern með hníf
- sinueldar eru heitir
- og muniði; black is the new black
»
07.03.2006 18:18:41 / heidurlo
..
Margt skemmtilegt hefur verið í gangi undanfarið og margt
skemmtilegt framundan, þar á meðal apríl en ég er ekki frá því að hann sé
besti mánuðurinn á árinu.
En að öðru. Ég hef tekið eftir því undanfarið að stjörnuspáin
í mogganum fer hríðversnandi eftir að það kom ný kona með
spár...sumar spárnar eru alveg óskiljanlegar og stórskrítnar.
Skoðum stjörnuspána mína frá því í dag sem dæmi:
,,Náttúran viðheldur sjálfri
sér. Þar sem nautið er jarðarmerki er það í einstakri stöðu
til þess að velta sér uppúr því. Þú þarft ekkert að leita að
næsta skógi. Skerðu kúrbít í tvennt og horfðu á fræin. Horfðu
af öllum kröftum."
En jæja þá, ég er farin að kaupa kúrbít. Yfir og
út
»
13.02.2006 16:44:27 / heidurlo
já það virðist sem p-máls færslan hafi fallið í grýttan
jarðveg.
sú staðreynd að lagningardagar og árshátíðin sé í næstu viku hlýjar
mér um hjartarætur og ég hlakka mikið til að sjá hvað verður í boði
á lagnó...Helgi er að pluga eðlisfræðifyrirlestri á fullu. "hann
verður geðveikt skemmtilegur"....
mikið vildi ég samt óska þess að ég gæti upplifað alvöru prom með
öllu tilheyrandi. Ógeðslega corny kjól,
klósettpappírsskreyttum íþróttasal, grínhljómsveit, Date-i ,limmó
and so on....ég myndi sennilega tárast að kveldi loknu enda sjálf
frekar corny. oftast.

æ sjáiði bara gleðina, líka hjá foreldrunum.
en jæja. ég er flutt til ameríku. bæbæ
»
03.02.2006 15:18:21 / heidurlo
épég fépékk apalvepeg snipilldapar hupugmypynd ápáðapan
þepegapar épég vapar apað hupugsapa upum þapað hvapað épég æpættipi
núpú apað blopoggapa....
opog jápá, húpún vapar sepemsapagt apað blopoggapa upum p-mál
(epeðapa p-mápál) og þapað ápá p-máli (epeðapa p-mápálipi).
Epen apallapavepegapannapa þápá ápá p-mápál ræpætur sípínar apað
repekjapa lapapangt apaftupur ípí típímapann opog vapar fypyrst
opog frepemst æpætlapað þeipeim læpærðaparipi tipil apað tapalapa
sípín ápá mipillipi þapannipig apað apalmúpúgipinn skipildipi
epekkipi oporð. Mápálipinupu hepefupur grupunnskópólipinn
hapaldipið upuppipi mepeð þvípí apað hapafapa smápá klaupausupu
upum þapað ípí eipeinnipi apaf kepennslupubópókupum þepess opog
þapannipig læpærði épég þapað tipil dæpæmipis! Eperupuðipi epekkipi
ápánæpægð mepeð þapað?? ; )
....Epen svoponapa ípí apalvöpörupu tapalapað þápá eper þapað
mjöpög gapagnlepegt opog skepemmtipilepegt. Própófipiðipi
baparapa!
»
27.01.2006 17:52:58 / heidurlo
já ég er svo sannarlega alltaf að breytast og koma sjálfri mér á
óvart með framferði mínu...Til dæmis hef ég ákveðið
að hætta í Stærðfræði 703, vegna skorts á vilja, nennu og
getu... svo er ég ekki með 100% mætingu
....gosh.
En allaveganna þá lítur önnin mun betur út núna og ég er í mjög
góðum áföngum og þá er ég sérstaklega hrifin af Fél
kvikmyndaáfanganum sem ég valdi óvart..
Horfðum á mjög góða heimildarmynd í gær sem heitir The Brandon
Teena story og ég mæli með því að allir sjái...Mér skilst einnig að
Boy´s don´t cry sé gerð eftir henni...
"The Brandon Teena Story
is the best queer documentary since Rob Epstein and Richard
Schmiechen's 1984 Academy Award-winning Times of Harvey
Milk. " (http://www.planetout.com/popcornq/db/getfilm.html?2414)
Þar hafiði það.
»
08.01.2006 14:51:12 / heidurlo
ég keypti mér bíl um daginn : ) það var sko áramótaheitið mitt,
að kaupa bíl og fara vel með hann...skemmtilegt áramótaheit
jes..
en já bíllinn er fagurrauður Fiat Punto, árgerð 98 og gengur undir
ýmsum nöfnum. algengast er að kalla hann ferrari-inn en móðir
kallar hann rauðu hættuna (enda á hann bróður sem heitir gullna
eldingin). ég held ég muni kalla hann krakkann þar sem þetta
er nýja (og eina) barnið mitt...og þó..Ferrari-inn hljómar
betur..eða bara Punto..

»
02.01.2006 17:03:12 / heidurlo
ég trúi því varla að það sé komið 2006...það er soldið
mikið...
2005 var nú samt meira snilldarárið og var e-ð megaskemmtilegt á
seyði í hverjum mánuði...man helst eftir tveimur akureyrarferðum í
vor, ég varð 18 á sumardaginn fyrsta og svo var sumarið náttúrulega
bara best en ég bjó mér annað heimili niðrí fagralundi og kynntist
quisnos og fór til útlanda og í útilegur og so on...ömm haustið var
frekar skrítið varðandi skólann en lokahófin 2 og afmælið hennar
kötlu voru algjörlega málið...desember mánuður var svo án efa einn
besti mánuðurinn...
jájá...svona er þetta...ég vænti þess samt að 2006 verði ennþá
betra ár.. vonandi færir það ykkur lukku og hamingju...
kv. Heiður
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|